Breytingar á aðild að Bandalagi háskólamanna
Á undanförnum vikum hafa orðið nokkrar breytingar á aðild stéttarfélaga að BHM. Eitt félag hefur samþykkt að ganga úr bandalaginu og tvö gengu í BHM á aðalfundi bandalagsins þann 29. apríl.
Á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem haldinn var þann 12. maí var úrsögn félagsins samþykkt af 53 fulltrúum aðalfundar. Ákvörðunin snertir 2260 hjúkrunarfræðinga og aðild þeirra að sjúkra- og styrktarsjóði BHM. Úrsögn Fíh tekur gildi um næstu áramót.
Félag leikstjóra á Íslandi og Félag íslenskra hljómlistarmanna gengu til liðs við BHM á aðalfundi, BHM býður um 470 félagsmenn nýju félaganna velkomna í bandalagið.
Því má bæta við að Félag prófessora við ríkisháskóla mun taka fyrir aðildarumsókn að BHM á aðalfundi sínum þan 20. maí. Áður hefur félagið send BHM viljayfirlýsingu um inngöngu í bandalagið en í bréfinu segir að aðild að BHM sé mikilvæg og ýmis réttindi háskólamanna verði best varin innan bandalagsins. Félag prófessora við ríkisháskóla telur um 200 félagsmenn.

