Breytingar um áramótin
mánudagur 13.febrúar 2012 - Lestrar 8
Um áramótin urðu þrjár breytingar á kjörum félagsmanna: (1) hliðrun um einn til hægri í launatöflu, (2) Tveggja ára
samkomulagið féll sjálfkrafa úr gildi og (3) nýjar reglur um vinnumatssjóð (til úthlutunar árið 2013).
1. Hliðrun um einn til hægri í launatöflu. Um áramótin fengu allir félagsmenn hliðrun um einn til hægri í launatöflu.
Við gerð kjarasamninga síðastliðið vor var stefnt að þessari hliðrun (hækkun umfram kjarasamninga) um áramótin og stóðst
það.
2. Tveggja ára samkomulag milli samstarfs- og saminganefndar FHA um tímabundna lækkun launakostnaðar HA sem gert var í janúar 2010 til tveggja ára
féll sjálfkrafa úr gildi um áramótin. Í samkomulaginu fólst að starfsskyldur dósenta, lektora og aðjúnkta yrðu eins og
hjá sömu hópum við Háskóla Íslands þegar það félli úr gildi.
Samkvæmt upplýsingum frá Hugrúnu launafulltrúa er kennsluskylda fyrir skólaárið 2011-2012 sem hér segir:
Lektorar/dósentar 38 ára og eldri 817 kennslueiningar
Lektorar/dósentar 30-37 ára 829 kennslueiningar
Lektorar/dósentar til þrítugs 842 kennslueiningar
Aðjúnktar 38 ára og eldri 1026 kennslueiningar
Aðjúnktar 30-37 ára 1040 kennslueiningar
Aðjúnktar til þrítugs 1056 kennslueiningar
3. Nýjar reglur um vinnumatssjóð voru samþykktar í háskólaráði. Reglurnar eru sambærilegar við reglur í
Háskóla Íslands, þó með þeim undantekningum að; a) allir félagsmenn FHA geta sótt í sjóðinn (ekki bara 50%
stöðugildi og hærra eins og í HÍ) og b) að stig sem tilheyra doktorsverkefnum verða talin næstu þrjú árin en það er ekki gert
í HÍ. Reglurnar í HÍ ná einnig til sérfræðinga og fræðimenna en ekki reglurnar í HA.
Úthlutað verður eftir gömlu reglunum á þessu ári en eftir þeim nýju haustið 2013.
Einnig er rétt að minna á það að þann fyrsta mars n.k. fá félagsmenn 3,5% hækkun á launum samkvæmt kjarasamningi.

