fha.is

Félag Háskólakennara á Akureyri

Fréttir

Jólakaffi og innpökkun á gjöfum

Kæru félagsmenn

Í stað þess að Félag háskólakennara á Akureyri bjóði upp á fordrykk á jólafagnaði Háskólans á Akureyri þá hefur stjórnin ákveðið að færa Mæðrastyrksnefnd hér á Akureyri jólagjafir til barna og mun nefndin dreifa pökkunum til fjölskyldna sem til hennar leita fyrir jólin.  Vegna þessa hafa verið keyptar nýútgefnar barnabækur frá bókaútgáfunni Tindi hér á Akureyri fyrir 60.000 krónur en bókaútgáfan hefur sýnt samhug vegna málefnisins.  

Næsta þriðjudag, 14. desember, hvenær sem er milli kl. 10 - 11, bjóðum við öllum starfsmönnum HA og sambýlingum okkar hér á stór-Sólborgarsvæðinu að kíkja við í mötuneytinu á Sólborg og þiggja kaffi, te eða gos og jólasmákökur og um leið eiga með okkur samverustund við að pakka inn gjöfunum.  Jólapappír og allt sem þarf til að ganga frá gjöfunum verður á staðnum. Þeir sem hafa tök á að bæta við jólagjöf til Mæðrastyrksnefndar geta pakkað henni inn á staðnum og sent til nefndarinnar með hinum pökkunum.

Hittumst glöð og í jólaskapi!

Stjórn Félags háskólakennara á Akureyri - FHA


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn