Miðstjórn BHM ályktar um kjarasamninga
fimmtudagur 24.júní 2010 - Lestrar 18
Ályktun miðstjórnar BHM vegna kjarasamninga aðildarfélaga samþykkt á miðstjórnarfundi 23. júní 2010.
BHM er reiðubúið til samráðs og samvinnu um leiðir til að takast á við efnahagsvanda þjóðarinnar. Bandalagið minnir á að laun flestra háskólamanna hafa verið fryst, ef ekki lækkuð, frá því um mitt ár 2008. Bandalagið mun því aðeins taka þátt í heildarsátt um kjaramál á íslenskum vinnumarkaði að kjarasamningar verði gerðir við aðildarfélög BHM og að í kjarasamningaviðræðum verði tekið tillit til eftirfarandi þátta:
- Leiðrétt verði kaupmáttarskerðing félagsmanna frá miðju ári 2008.
- Markvisst verði unnið að því að háskólamenntun sé metin til launa.
- Lokið verði við óuppfyllt ákvæði frá fyrri samningum, svo sm nýtt fyrirkomulag sí- og endurmenntunar.
- Tekið verið tillit til námslána við umfjöllun um skuldabyrði heimilanna í landinu.
- Lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna verði endurskoðuð. Almennt ákvæði um yfirvinnuskyldu verði fellt út og einnig verði ákvæði um skyldu til að hlíta breytingum á starfi fellt út eða því breytt þannig að ákvæðum ráðningasaminga verði ekki breytt einhliða.
- Vinnulöggjöf verði breytt þannig að nýr kjarasamningur gildi frá þeim degi þegar sá sem fyrir er fellur úr gildi.
- Staðið verði við fyrirheit um starfsendurhæfingarsjóð.
- Uppsagnarfrestur starfsmanna 55 ára og eldri verði lengdur.

