Rafrænn félagsfundur
þriðjudagur 15.desember 2009 - Lestrar 27
Nú stendur yfir rafrænn félagsfundur þar sem félagsmönnum gefst tækifæri á að kjósa um hvort þeir eru samþykkir því samkomulagi sem samstarfs- og samninganefnd FHA og HA hefur undirritað með fyrirvara um samþykki félagsfundar eða ekki.
Allir félagsmenn FHA eiga að hafa fengið senda slóð í tölvupósti og með því að smella á þá slóð er hægt að greiða atkvæði. Hver félagsmaður getur aðeins greitt einu sinni atkvæði. Við hvetjum alla félagsmenn til að taka þátt í kosningunni og minnum á að henni lýkur kl. 17 í dag.

