Umsókn um styrk úr mannskiptaáætlun opinberra starfsmanna
sunnudagur 15.nóvember 2009 - Lestrar 22
Norræna ráðherranefndin lýsir eftir umsóknum um styrki úr mannskiptaáætlun opinberra starfsmanna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.
Nú er hægt að sækja um styrk í mannskiptaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir opinbera starfsmenn á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Áætlunin styrkir starfsmenn ríkis og sveitarfélaga á Norðurlöndum til þess að stunda tímabundið störf eða nám á starfsvettvangi sínum í Eistlandi, Lettlandi eða Litháen.
Sjá nánar á vefsíðu ráðuneytisins með því að klikka hér.

