Félagsmenn í Félagi háskólakennara á Akureyri geta orðið starfsmenn Háskólans á Akureyri, tengdra stofnana og samstarfsstofnana
sem hafa a.m.k. BA/BS próf eða sambærilegt próf frá viðurkenndum háskóla. Félagsmenn eru annað hvort með fulla aðild eða
aukaaðild að félaginu. Aukafélagar hafa fullt málfrelsi og tillögurétt í félaginu en ekki atkvæðisrétt,
kosningarétt eða kjörgengi. Þó er heimilt að veita aukafélögum atkvæðisrétt um sín sérmál, samkvæmt
ákvörðun meirihluta félagsfundar hverju sinni. Fulla aðild eiga allir starfsmenn Háskólans á Akureyri, stofnana hans og samstarfsstofnana, sem
hafa háskólapróf eða aðra sambærilega menntun og gegna a.m.k. 1/3 hluta starfs við skólann.
Starfsmenn Háskólans á Akureyri, stofnana hans og samstarfsstofnana, sem hafa háskólapróf eða aðra sambærilega menntun og gegna minna en 1/3 starfs við skólann eiga aukaaðild að félaginu.
Fyrrum félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og greiða félagsgjald til félagsins teljast aukafélagar.
Stjórn félagsins tekur ákvörðun um inntöku nýrra félaga og skal hún staðfest árlega á aðalfundi

Í janúar 2011 voru 130 starfsmenn skráðir sem félagar í FHA. Lista yfir félagsmenn er að finna hér.