fha.is

Félag Háskólakennara á Akureyri

Námssjóður FHA

Umsóknareyðublað

Námssjóður FHA styrkir félagsmenn til að sækja ýmis námskeið.  Styrkhæf námskeið eru:

  • Innritunargjöld í háskóla.
  • Námskeiðsgjöld sem aðrir sjóðir styrkja ekki.
  • Námskeiðsgjöld ef réttur til styrks í BHM hefur verið nýttur að fullu.

Sjóðurinn greiðir ekki styrki til líkamsræktar.  Styrkupphæð hvers félagsmanns getur numið allt að 80% af heildarkostnaði námskeiðs en verður aldrei hærri en kr. 40.000 með eftirfarandi skilyrðum:

  • Hver félagsmaður fær ekki úthlutað meira en hámarksfjárhæð á hverju almanaksári (1. janúar - 31. desember).
  • Félagsmaður sem er í minna en hálfu starfi fær aðeins hálfan styrk frá FHA.
  • Ef ekki er nægt fé í sjóðnum til að afgreiða umsókn, verður slík umsókn sett í forgang á næsta ári.

Umsóknir skulu berast til gjaldkera (Guðmundar Óskarssonar gko@unak.is) og metur stjórn félagsins allar umsóknir.  Með umsókninni þarf að fylgja frumrit af greiðslukvittun fyrir það námskeið sem sótt er um styrk til.  Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeið allt að einu ári aftur í tímann miðað við dagsetningu reiknings.

Reglur þessar eru samþykktar á stjórnarfundi FHA 24. janúar 2011 og taka gildi frá og með 1. janúar 2011.  Við gildistökuna falla úr gildi eldri starfsreglur og aðrar ákvarðanir sem ekki eru í samræmi við reglur þessar.

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn