Reglur um
rannsóknamisseri
Reglur um
starfsþjálfunarleyfi
Dagpeningar og fargjöld
Umsókn um rannsóknamisseri
Umsókn um starfsþjálfunarleyfi
Rannsóknamisseri
Prófessorar, dósentar, lektorar og aðjúnktar við Háskólann á Akureyri geta sótt um rannsóknamisseri á grundvelli kjarasamnings
fjármálaráðherra og Háskólans á Akureyri en þar segir í grein 10.1.3:
Heimilt er háskólaráði að lækka eða fella niður kennslu- og stjórnunarskyldu háskólakennara 1 eða 2 misseri í senn til þess að gera honum kleift að verja auknum hluta vinnutíma síns til rannsóknarstarfa. Kennslu- og stjórnunarskylda á starfstíma kennarans að meðtöldum leyfistímanum verði að jafnaði eigi lægri en 50% en háskólaráði er þó heimilt að víkja frá þessu skilyrði þegar sérstaklega stendur á.
Umsóknafrestur er 1. febrúar ár hvert og skila skal umsóknum undirrituðum til RHA og einnig á rafrænuformi á rannsoknir@unak.is
Starfsþjálfunarleyfi
Fastráðnir starfsmenn háskólans sem ekki hafa rannsóknaskyldu og starfað hafa við
háskólann í fjögur ár hið minnsta geta sótt um leyfi til starfsþjálfunar í allt að tvo mánuði. Umsókn um
starfsþjálfunarleyfi skal skila næsta yfirmanni eigi síðar en þremur mánuðum fyrir fyrirhugað leyfi. Æskilegast er að umsókn
berist fyrir samþykkt rekstraráætlunar viðkomandi árs.
Kennarar og aðrir starfsmenn, sem veitt er leyfi, skulu skila skýrslum um störf sín á leyfistímabilinu eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að leyfi lýkur.
Frekari upplýsingar um rannsóknamisseri og starfsþjálfunarleyfi er að finna á heimasíðu stjórnsýslu rannsókna.

