fha.is

Félag Háskólakennara á Akureyri

Starfsmenntasjóður BHM

Umsóknareyðublað
Starfsreglur Starfsmenntasjóðs Bandalags háskólamanna
Reglugerð um starfsmenntasjóð starfsmanna ríkisins innan BHM

Félagar í FHA eiga rétt á styrk úr Starfsmenntasjóði Bandalags háskólamanna.  Forsenda styrks er að viðkomandi félagsmaður hafi greitt félagsgjöld í a.m.k. eitt ár samfellt og má félagsmaður ekki hafa hlotið hámarksfyrirgreiðslu síðast liðin 2 ár.  Réttindi safnast ekki fyrir í sjóðnum og það að hafa aldrei sótt um kemur sjóðsfélaga ekki til góða nema ef sjóðurinn er rýr en þá njóta þeir forgangs sem aldrei hafa fengið úthlutað áður.

Markmið Starfsmenntasjóðs Bandalags háskólamanna (STRIB) er að tryggja fjárhagslegan grundvöll símenntunar og endurhæfingarnáms félagsmanna BHM.

Helstu upplýsingar um styrkinn:

  • Hámarksstyrkur er kr. 75.000 fyrir verkefni sem hefjast frá 1. janúar 2009 eða síðar.
  • Fjallað er um umsóknir sex sinnum á ári, í janúar, mars, maí, júlí, september og nóvember.
  • Umsóknir verða að berast skrifstofu BHM fyrir 1. þess mánaðar er stjórn kemur saman.
  • Öllum umsækjendum er svarað.
  • Allir umsækjendur fá sendur upplýsingar um hvaða gögn þurfa að berast sjóðnum til að styrkur fáist greiddur út.
  • Frumrit af reikniningum og staðfesting á að styrknum hafi verið varið eins og til var ætlast þurfa að berast eigi síðar en 20. hvers mánaðar.
  • Styrkur er öllu jöfnu greiddur út 25. hvers mánaðar.
  • Loforð um styrkveitingu fellur úr gildi níu mánuðum frá dagsetningu tilkynningar um styrkveitingu ef tilskilin gögn hafa ekki borist sjóðnum innan þess tíma.
  • Hægt er að sækja um styrk vegna verkefna innanlands sem utan.
  • Hægt er að sækja um styrk vegna ferða á ráðstefnur og námskeið.
  • Hægt er að sækja um styrk vegna hótels- og gistikostnaðar, námsgjaldakostnaðar vegna námskeiða og hluta af símaskostnaði vegna fjarnáms.
  • Launatap er ekki bætt úr sjóðnum.
  • Styrkir úr sjóðnum eru framtalskyldir en ekki staðgreiðsluskyldir.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins.

 

 

 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn