fha.is

Félag Háskólakennara á Akureyri

Stofnanasamningur FHA

Stofnanasamninur FHA við HA

Stofnanasamningur FHA við HA rann út 30. apríl 2008.  Hann hefur ekki verið framlengdur formlega.

Stofnanasamningur er hluti af kjarasamningi og er meðal annars ætlað að tryggja þróun og stuðla að skilvirkara launakerfi sem tekur mið af þörfum og verkefnum stofnunar og starfsmanna hennar.  Markmið hans er að auka gæði þjónustunnar með því að efla samstarf starfsmanna og stjórnenda á vinnustað.  Samstarfinu er ætlað að bæta rekstrarskipulag stofnunar, bæta nýtingu rekstrarfjármagns og skapa grundvöll fyrir aukinni hagræðingu og skilvirkara launakerfi og þannig gefa starfsmönnum tækifæri til að þróast og bæta sig í starfi og þar með auka möguleika þeirra á bættum kjörum.

Í stofnana samningi er samið um hvaða þættir og/eða forsendur skulu ráða mati á persónu- og tímabundnum þáttum, sbr. gr. 1.2.2 kjarasamnings FHA og fjármálaráðherra. 

Kennarar (aðjúnktar, lektorar, dósentar)

Á grundvelli mats og uppsafnaðra stiga skal færa kennara milli starfa.  Vegna þess skal árlega meta árangur í starfi m.t.t. einstakra starfsþátta skv. staðfestu kennsluuppgjöri og rannsóknaskýrslu.  Mati skal lokið fyrir 1. september ár hvert og gildir launaflokkahækkun frá sama tíma.

Aðjúnktar, lektorar og dósentar raðast í launaflokka samkvæmt eftirfarandi töflu:

Rannsókna-
stig 
 Kennslu-
stig
 Heildar-
stig
Lfl. Álag frá
1/1 2007
Álag frá
1/5 2007
- < 50 L07 2,5% 5,0%
- - 50 L08 2,5%  5,0%
50 - 100 L09 2,5% 5,0%
80 - 150 L10 2,5% 5,0%
120 - 200 L11 2,5% 5,0%
270 100 400 L12 2,5% 5,0%
400 120 600 L14 2,5% 5,0%
550 150 900 L16 2,5% 5,0%
750 180 1200 L17 10,0% 12,5%
1000 180 1600 L17 12,5% 15,0%
1500 180 2000 > L18 12,5% 15,0%


Samkvæmt stofnanasamningi er í gildi yfirvinnuþak.  Starfsmanni er þó heimilt í samráði við yfirmann að kenna tímabundið umfram yfirvinnuþak og flytja yfirvinnu sem samsvarar allt að eins misseris heimilaðri yfirvinnu milli missera.  Yfirvinnuþak er eftirfarandi:

Launaflokkar: L07 L08 L09 L10 L11 L12 L14 L16 L17 L18
Tímar að hámarki: 58 56 54 50 45 45 45 39 35 35

 

Stjórnsýslu-, þjónustu- og sérfræðistörf

Stjórnsýslu-, þjónustu- og sérfræðistörf sem ekki er ráðið í á grundvelli akademísks hæfis eru metin til stiga samkvæmt stigamati annarra starfsmanna. 

Starfsfólk í stjórnsýslu-, þjónustu- og sérfræðistörfum raðast í launaflokka samkvæmt eftirfarandi töflu:

Heildar-
stig

Lfl. 1/5
2006
Heildar-
stig
Lfl. 1/5
2007
< 350 L05 < 350 L05
350 L06 350 L06
400 L07 375 L07
425 L08 425 L08
475 L09 475 L09
525 L10 525 L10
575 L11 575 L11
625 L12 625 L12
675 L13 675 L13
725 L14 725 L14
775 L15 775 L15
825 L16 825 L16
875 L17 875 L17
925 > L18 925 > L18


Starfslýsingar eiga að endurskoðast ekki sjaldnar en einu sinni á ári.  Starfsmenn geta sótt um ársmat í maímánuði ár hvert og skulu niðurstöður liggja fyrir í september.  Breytingar á röðun í launaflokka á grundvelli ársmats taka gildi 1. september ár hver.

Starfsheiti háskólamenntaðra starfsmanna hjá Háskólanum á Akureyri sem raðast í launaflokka á grundvelli starfs- og hæfnismats eru eftirfarandi:

Verkefnisstjóri I
Verkefnisstjóri II
Verkefnisstjóri III
Sérfræðingur I
Sérfræðingur II
Skrifstofustjóri
Námsráðgjafi
Háskólabókavörður
Forstöðumaður sviðs
Forstöðumaður seturs/stofnana
Framkvæmdastjóri

Frekari upplýsingar um Stofnanasamning FHA og HA er að finna hér.

 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn