fha.is

Félag Háskólakennara á Akureyri

Styrktarsjóður BHM

Umsóknareyðublað
Úthlutunarreglur
Skipulagsskrá Styrktarsjóðs

Starfsmenn ríkisins, sveitarfélaga og sjálfseignastofnana eiga aðild að Styrktarsjóði BHM.  Sjóðnum er ætlað að styrkja aðildarfélaga fjárhagslega ef til ólaunaðra fjarveru kemur vegna veikinda eða annarra persónulegra aðstæðna.  Sjóðurinn styrkir einnig ýmiss konar heilbrigðisþjónustu eða óvænt áföll aðildarfélaga.  Styrktarsjóðurinn hefur tekið að sér hlutverk Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BHM að greiða fæðingarstyrki.  Fæðingarstyrkir eru eingreiðsla upp á kr. 170.000 og miðast við hvern félagsmanna sem sækir um.  Séu báðir foreldrar félagsmenn geta þeir báðir sótt um.   

Senda ber inn rafræna umsókn um styrk fyrir 10. hvers mánaðar.  Allir styrkir eru greiddir út 25. hvers mánaðar eða næsta virkan dag ef um er að ræða laugardag eða sunnudag.  Hægt er að sækja um styrki á grundvelli allt að árs gamalla reikninga og er þá miðað við dagsetningu á móttöku umsókna.  Nánar um Styrktarsjóð BHM er að finna hér.

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn