fha.is

Félag Háskólakennara á Akureyri

Um FHA

Félag háskólakennara á Akureyri (FHA) var stofnað árið 1992 og er stéttarfélag háskólamanna við Háskólann á Akureyri.  Kennarar (aðjúnktar, lektorar, dósentar) og sérfræðingar (við rannsóknir, stjórnsýslu eða þjónustu) geta orðið félagsmenn í FHA.  Meginhlutverk FHA er að semja um kaup og kjör fyrir félagsmenn sína.  Fyrsti kjarasamningurinn við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs var gerður haustið 1992 og sá síðasti vorið 2008.  Jafnframt var gerður stofnanasamningur við yfirstjórn HA.  Þessir samningar gilda frá 1. júní 2008 til 31. mars 2009.

Félagið er aðili að Bandalagi háskólamanna (BHM). 

Formaður félagsins er Hjördís Sigursteinsdóttir (hjordis@unak.is). 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn