Félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað stýrihóp um velferðarvakt sem ætlað er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna. Hlutverk stýrihópsins er að stýra velferðarvaktinni og samhæfa upplýsingaöflun og tillögugerð.
Heimasíða velferðarvaktarinnar er hér

